Fræðsla vegna notkunar eftirlitsmyndavéla hjá Diesel.is

Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: Bílheimar ehf., kt. 650324-1880, Stekkjarbakka 6, 109 Reykjavík, sími: 578-5252 og netfang: diesel@diesel.is (Hér eftir vísað til sem ábyrgðaraðila).
Persónuverndarfulltrúi: Persónuverndarfulltrúi félagsins er Friðjón B. Gunnarsson hjá FBG ráðgjöf ehf. Hægt er að hafa samband við hann með tölvupósti. Netfang: personuvernd@fbg.is
Tilgangur vöktunarinnar: Myndavélarnar eru settar upp í öryggis- og eignavörslutilgangi á bílasölunni Diesel.is og lóð ábyrgðaraðila við Stekkjarbakka 6, t.d. ef upp koma slys eða innbrot, skemmdarverk og önnur hegningarlagabrot sem vísa þarf til lögreglu. Í þeim tilvikum þar sem atvik sem upp kunna að koma og varða eftirlitsskyldu yfirvalda mun þeim aðilum standa til boða að óska eftir aðgangi að myndefninu til samræmis við ákvæði laga. Myndavélarnar eru ekki notaðar í öðrum tilgangi en hér er kveðið á um. Myndavélarnar vakta eignarlóð ábyrgðaraðila og afgreiðslu innanhúss. Öllum myndavélunum er beint að svæði sem er innan lóðamarka og tilheyrir ábyrgðaraðila. Þær taka aðeins upp mynd en ekki hljóð. Þau svæði sem eru vöktuð af eftirlitsmyndavélakerfinu eru auðmerkt sérstaklega.
Heimild til vinnslu: Vinnsla persónuupplýsinga sem á sér stað í tengslum við rafræna vöktun uppfyllir ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og ákvæði reglugerðar ESB 2016/679 (GDPR). Ofangreind vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna ábyrgðaraðila í öryggisog eignavörslutilgangi, sbr. 6. tl. 1. mgr. 9. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Persónuupplýsingar sem unnið er með: Myndefnið sem verður til við vöktunina sýnir einstaklinga sem fara um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.
Viðtakandi: Aðeins einn einstaklingur hefur aðgang að myndefninu sem verður til við eftirlitið. Engir aðrir aðilar hafa aðgang að efninu. Myndefni verður eingöngu miðlað til þriðju aðila sem hafa lögbundna heimild til upplýsingaöflunar, t.d. vegna eftirlitsskyldu sinnar, svo sem Persónuvernd, Vinnueftirlitið, heilbrigðiseftirlitið og lögreglan, svo dæmi séu tekin. Efni kann einnig að vera afhent tryggingafélagi sé slíkt nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Að öðru leyti vísast til 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Varðveislutími myndefnis: Myndefni er varðveitt í 30 daga og því síðan eytt. Upptökur geta verið varðveittar lengur sé slíkt nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum þess eytt. Að öðru leyti vísast til 2. tl. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Réttindi einstaklinga: Þú getur átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú kemur fyrir. Þá geturðu einnig átt rétt á afriti af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti vísast til III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði III. kafla reglugerðar ESB nr. 2016/679.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.
Reykjavík, 8. maí 2024
f.h. Bílheima ehf.
Kolbeinn Blandon.