Lagalegir fyrirvarar
LAGALEGIR FYRIRVARAR DIESEL.IS
Upplýsingar á þessum vef eru samkvæmt okkar bestu vitund á hverjum tíma og er ekki tekin ábyrgð á viðskiptum sem gerð eru á grundvelli þeirra. Þá getum við ekki ábyrgst að upplýsingarnar séu allar réttar. Þá kunna þær upplýsingar og skoðanir sem fram koma á vefnum að breytast án fyrirvara.
Þær upplýsingar sem eru birtar á heimasíðu okkar fela á engan hátt í sér ráðleggingar til viðskiptavina um kaup eða sölu og bera notendur síðunnar einir ábyrgð á þeim fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á heimasíðunni.
Við berum ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum er birtast á heimasíðu okkar né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef okkar. Þá berum við ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn um skemmri eða lengri tíma.
Við eigum höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á þessum vef, nema annað sé tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki okkar þarf til að endurbirta upplýsingar sem hér koma fram, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis upplýsingarnar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita eða dreifa þeim. Viðskiptavinum okkar er þó heimilt að vista þær til sinna einkanota.
LAGALEGUR FYRIRVARI VEGNA TÖLVUPÓSTSENDINGA
Upplýsingar sem kom fram í tölvupósti og eftir atvikum viðhengjum, sendum frá netföngum okkar, gætu innihaldið trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og eru eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Efni hans og innihald er á ábyrgð þess starfsmanns sem sendir hann ef það tengist ekki starfsemi okkar. Ef tölvupóstsending hefur ranglega borist yður vinsamlega gætið fyllsta trúnaðar, tilkynnið sendanda og eyðileggið sendinguna eins og skylt er skv. 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.
UPPLÝSINGAR UM ÞIG
Vakin er athygli á því að þegar farið er inn á vefsíðu okkar vistast kökur (e. cookies) í tölvu notandans. Kökur eru litlar textaskrár sem notaðar eru til þess að greina heimsóknir á vefsíðu eftir IP-tölum. Aðrar vefsíður geta ekki lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í kökunni.
Upplýsingar sem verið er að safna á vef okkar um notendur eru:
- Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
- Lengd innlita gesta
- Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
- Tegund skráa sem sóttar eru af vefnum
- Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
- Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
- Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
- Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður
Þessar upplýsingar eru notaðar til þess afla vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni fólk hefur áhuga á að skoða. Þannig getum við aðlagað vefinn betur að þörfum notenda.
Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig er hægt að eyða kökum með einföldum hætti. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna á heimasíðum flestra vafra.
MARKHÓPAGREINING
Við notum tæknilausnir Google til að greina notendahópinn okkar í þeim tilgangi að sinna honum betur. Með því að stilla til Google Ads Settings á vef Google getur þú ákveðið að taka ekki þátt í slíkum greiningum. Við notum gögn sem safnað er með Google Analytics svo sem aldur, kyn og áhugamál, til þess að bæta þjónustuna okkar. Við leitumst aldrei við að greina hegðun notenda niður á einstaklinga heldur viljum aðeins nýta þessar upplýsingar í nafnlausum og almennum tilgangi. Þannig getur okkar þjónusta orðið betri með tímanum.