AÐ KAUPA BÍL
Fáðu góð ráð hjá sölumönnum okkar áður en þú gengur frá bílakaupum! FÍB hefur sett fram gagnlegar upplýsingar fyrir bílakaupendur.
Hvernig bíll?
Í upphafi verður að gera sér grein fyrir hvernig bíl er leitað að. Hvernig á að nota hann og hvað má hann kosta. Taka þarf tillit til stærðar, öryggis, þæginda og umhverfisins. Gerið raunhæfa fjárhagsáætlun, greiðslugetan takmarkar þá bíla sem koma til greina. Bílar eru dýrir í rekstri þannig að nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir eldsneytisnotkun, varahlutaverði og endursölumöguleikum áður en endanlegt val er ákveðið. Sýnið fyrirhyggju og metið alla kostnaðarþætti.
Kannið framboð bifreiða á bílasölum og lesið auglýsingar
Farið á milli bílasala og fylgist með smáauglýsingum. Með því að kynna sér vel þá bíla sem boðnir eru til sölu er hægt að finna út markaðsverð og framboð. Ef hugmyndin er að láta bíl uppí í skiptum þarf einnig að kanna markaðsstöðu þess bíls. Það getur borgað sig að selja bíl frekar en bjóða hann í skiptum. Kynnið ykkur afföll og afslátt, það er vinna sem er fljót að borga sig. Fallið ekki fyrir sölufrösum og kannið vel bíla sem eru ódýrari en sambærilegir bílar á markaðnum. Sölumennskan leiðir af sér að flestir viðskiptavinir fá sérstakt tilboðsverð óháð því hvort það er satt og rétt. Það er hagur söluaðila að viðskiptavinurinn ákveði sig sem allra fyrst. Farið ykkur hægt og gangið til viðskipta að vel athuguðu máli, það er í flestum tilvikum meira framboð en eftirspurn.
Metið ástandið
Það verður að gefa sér nægan tíma til að kanna ástand þeirra bíla sem vekja áhuga. Eigin könnun er fyrst og fremst til að flokka þá bíla frá sem ekki koma til greina. Látið ekki lauslega eigin könnun ráða úrslitum um bílaviðskipti. Þeirra sem þekkja lítið til bifreiða er ráðlagt að fá aðstoð frá vini eða ættingja sem er betur að sér, betur sjá augu en auga. (Sjá kafla um ástandsskoðun) Þar sem bílar eru flókin og margbreytileg tæki getur jafnvel vönum bifvélavirkjum yfirsést við einfalda ástandskönnun. Fagleg könnun krefst verkfæra, mælitækja og bílalyftu. Farið í gegnum meðfylgjandi athugunarlista og ef niðurstaðan er jákvæð er óhætt að reynsluaka bifreiðinni. Gefið ykkur góðan tíma í prufuaksturinn og akið bílnum á vegi með 90 km hámarkshraða því á 80-90 km hraða má oft greina óeðlileg hljóð, einnig er hægt að greina titring og ef bíllinn er afllítill.
Sjá nánar á vef FÍB